Hellisland 36 | Deiliskipulag – 2001293
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillögu að deiliskipulagi.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti þann 5.3.2025 tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðalóðina Hellisland 36 á Selfossi. Tillagan gerir ráð fyrir núverandi íbúðarhúsi, auk heimildar til að byggja allt að 70m2 aðstöðuhús á sama byggingarreit. Þá er gert ráð fyrir 2 lóðum undir íbúðarhús, allt að 150m2
Kvöð er um akstur í gegnum lóðina Hellisland 36A, að lóðinni Hellislandi 36B.
Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til auglýsingar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillöguna á vefslóðinni www.arborg.is og á www.skipulagsgatt.is
Skipulagstillagan er í auglýsingu frá 13. mars 2025, til og með 30. apríl 2025.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67 á Selfossi, eða með tölvupósti á netfangið skipulag@arborg.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 30. apríl 2025.
Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi