Miðbær Selfoss | Deiliskipulagsbreyting – 2405083
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi deiliskipulagsbreyting.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti þann 5.3.2025 tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir miðbæ Selfoss. Breytingar eru gerðar á uppdrætti og greinargerð útgáfu 04, og eru þær í 17 liðum og nánar lýst í greinargerð (bls. 6 - 7), og á uppdrætti tillögunnar.
Vakin er athygli á breytingu eftir fyrri afgreiðslu skipulagsnefndar sem er eftirfarandi:
Á uppdrætti: Við Miðstræti 10 - 20 stendur núna: "a.m.k. 32 bílastæði í kjallara" og við Miðstræti 1 - 27: "a.m.k. 14 bílastæði í kjallara". Breytingar á töflum á bls. 15. Hætt er við að fjölga fermetrum í kjöllurum. Í töflum er sú breyting frá auglýstri tillögu að fermetrum er fækkað í Miðstræti 1 - 21 og 29 - 45 en aukið um 200m2 í Miðstræti 10 - 20. Sú 30 bílastæða aukning í kjöllurum vestursvæðis sem var í auglýstri tillögu er því felld út.
Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til auglýsingar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillöguna á vefslóðinni www.arborg.is og á www.skipulagsgatt.is
Skipulagstillagan er í auglýsingu frá 13. mars 2025, til og með 30. apríl 2025.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67 á Selfossi, eða með tölvupósti á netfangið skipulag@arborg.is.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 30. apríl 2025.
Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi