Framkvæmdir við Engjaveg á Selfossi
Á miðvikudaginn kemur þann 28. október, munu framkvæmdir hefjast við viðhald á hitaveitu ásamt dreifilögn frá Engjavegi 22 að Engjavegi 42 við gatnamót Tryggvagötu. Einnig verður ný niðurfallslögn regnvatns lögð frá Engjavegi 22 að Sigtúni, yfirborð endurnýjað í bílastæðum Engjavegar, ný gangstétt lögð ásamt endurnýjun á ljósastaurum.
HS Veitur munu leggja nýjan rafstreng undir gangstétt og endurnýja heimtaugar.
Verkið er unnið í 4 köflum og hefst verkið á uppgreftri inn í Sigtún frá Engjavegi og verður Engjavegurinn lokaður í 3 vikur á meðan sá kafli er í vinnslu. 2. kafli er frá Sigtúni að Tryggvagötu, 3. kafli er út í gatnamót Engjavegar og Tryggvagötu og 4. kafli er frá Seljavegi að Sigtúni.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar framkvæmdir geta haft í för með sér. Merkingar um hjáleiðir og lokanir verða settar upp á meðan á framkvæmdum stendur
Verktími þessara framkvæmda er áætlaður til loka desember en er auðvitað háður veðri.



