Leikskólinn Hulduheimar er 20 ára!
Í tilefni af afmælinu verður opið hús í Hulduheimum, Erlurima 1 á Selfossi, þriðjudaginn 17. nóvember kl. 08:00-16:00.
Foreldrar, fjölskyldur, fyrrverandi nemendur, starfsfólk og aðrir velunnarar leikskólans eru hjartanlega velkomnir að fagna þessum tímamótum með okkur.


