Gjafatré fyrir Jólin 2026
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir grenitrjám úr heimagörðum sem íbúar þurfa að losa sig við og gætu nýst sem torgtré fyrir jólin.
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir grenitrjám úr heimagörðum sem íbúar þurfa að losa sig við og gætu nýst sem torgtré fyrir jólin.
Þjónustudeild Árborgar kemur á staðinn og metur hvort trén eru nothæf og verða þau þá fjarlægð viðkomandi að kostnaðarlausu.
Vakin er athygli á því að sveitarfélagið getur ekki tekið tré sem er yfir 10 metrar og hægt að nálgast tréð með kranabíl. Æskileg stærð er 8 metrar.
Vinsamlegast sendið póst á thjonustumidstod@arborg.is eða hafið samband við Umhverfisdeild Sveitarfélags Árborgar í síma 480 1900.


