ÚTBOÐ | Austurvegur 2 - Endurnýjum á ráðhúströppum
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í framkvæmdaverkið: „Austurvegur 2 – endurnýjun á ráðhúströppum“
Verkið felur í sér rif, fjarlægingu og förgun á eldri steyptum tröppum og stéttum við Ráðhús Árborgar við Austurveg 2 á Selfossi. Þá er einnig um að ræða fjarlægingu og förgun þriggja steyptra staura sem standa við eldri ráðhúströppur.
Steypa skal upp nýjar tröppur og stéttar, leggja raflagnir fyrir fyrirhugaða LED lýsingu ásamt lagningu á snjóbræðslulögnum samkvæmt hönnunargögnum.
Helstu áætlaðar magntölur eru:
| Jarðvinna, gröftur | 108 m³ |
| Jarðvinna, fylling | 108 m³ |
| Steypumót | 406 m² |
| Bendistál | 6.492 kg |
| Steinsteypa | 108 m³ |
| Snjóbræðslurör | 2.400 m |
| Raflagnir ø32 PEH | 760 m |
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2027.
Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér: https://arborg.ajoursystem.net/Tender/DirectLink/69e3dc97-de7c-4ea2-aa59-108161ebb67a
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar.
Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 mánudaginn 30. nóvember 2026.
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.


