HönnunarMars í maí 2021
Á miðnætti mánudaginn 30. nóvember rennur út umsóknarfrestur fyrir stærstu hönnunarhátíð landsins.
Umsóknarferlið er snarpara en undanfarin ár svo tími gefist fyrir teymi að vanda betur til undirbúnings og
kynningarstarfs. HönnunarMars 2021 fer fram dagana 19.-23. maí 2021.
Hafa ber í huga að ekki er ætlast til að umsóknir séu fullkláraðar innan þessa
tímaramma og verður umsækjendum gefið rými til breytinga og bætinga á umsóknum sínum. Teymi HönnunarMars gerir sér að fullu ljóst að komandi tímar hafa í för með sér ákveðna óvissu og er góð samvinna við þátttakendur lykilatriði.
Hverjir eiga að sækja um?
- hönnuðir, arkitektar, stúdíó og stofur.
- fyrirtæki sem byggja starfsemi sína eða leggja sérstaka áherslu á hönnun eða arkitektúr.
- fyrirtæki sem selja hönnun eða hannaðar vörur.
- menningarstofnanir, söfn og sýningarsalir sem standa fyrir eða hýsa sýningar eða viðburði.
- menntastofnanir á svið hönnunar og arkitektúrs.
Það er auðvelt að sækja um á vefsíðu HönnunarMars þar sem allar helstu
upplýsingar um gjaldskrá og dagsetningar eru aðgengilegar.
Hér má finna svör við helstu spurningum varðandi umsóknarferlið.
Ýttu hér til að sækja um á HönnunarMars í maí 2021