Opnir fundir um ferðaþjónustu | vor 2025
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og Áfangastaða- og Markaðsstofur landshlutanna bjóða ferðaþjónustuaðilum á opna fundi vorið 2025.
Á fundunum verður sjónum beint að fjölbreyttum og spennandi viðfangsefnum, eins og starfsánægju, tækniþróun og gervigreind, sagnalist í ferðaþjónustu og fleira.
Alls verða sjö fundir um allt land. Dagskrá hvers fundar er sérsniðin að svæðinu og málefnin í takt við það sem brennur á ferðaþjónustunni hverju sinni. Á fundunum munu fyrirtæki og hagaðilar deila reynslusögum, góðum ráðum og ræða helstu áskoranir tengdar ferðaþjónustu.
Léttar veitingar verða í boði fyrir þátttakendur.
Hér má sjá yfirlit yfir dagsetningar fundanna. Nánari upplýsingar um dagskrá hvers fundar verða birtar á vefsíðu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar þegar nær dregur.
3. apríl: Borgarnes
9. apríl: Húsavík
10. apríl: Sauðárkrókur
28. apríl: Vestfirðir
30. apríl: Reykjanes
6. maí: Austurland
16. maí: Suðurland
Boðið verður upp á streymi/upptöku. Við hlökkum til að sjá ykkur og hvetjum ykkur til að taka daginn frá.