Vilt þú gerast dagforeldri í Árborg?
Auglýst er eftir einstaklingum sem hafa áhuga á að gerast dagforeldrar í Sveitarfélaginu Árborg.
Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi verktakar en umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra sem og ráðgjöf til dagforeldra og foreldra er á vegum sveitarfélagsins.
Við vekjum athygli á að niðurgreiðsla er samkvæmt gjaldskrá sem birt er á vefsíðu Árborgar. Veittir eru styrkir til dagforeldra samkvæmt reglum um daggæslu barna í heimahúsum og sótt er um þá inni á Mín Árborg, rafrænni íbúagátt á www.arborg.is.
Ef þú hefur áhuga á að gerast dagforeldri í Árborg má finna umsóknareyðublað inni á vefsíðu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála .
Nánari upplýsingar veita
Sigríður Elín Leifsdóttir, teymisstjóri barnateymis | netfang: sigridurelin@arborg.is
Guðný I. Rúnarsdóttir, leikskólaráðgjafi | netfang: gir@arborg.is í síma 480 1900