Orkustofnun styrkir varmadælukaup
Nánar um umsókn, skilyrði og styrkhæfan kostnað
Hver eru skilyrðin?
- Eignin verður að vera með niðurgreiðslu á rafhitun eða olíukyndingu
- Eignin verður að hafa lögheimilisskráningu
Hvernig virkar þetta?
- Sótt er um í gegnum þjónustugátt á vef Orkustofnunar (sjá neðar)
- Styrkurinn er reiknaður út frá kaupum á búnaði og efniskostnaði við uppsetningu hans.
- Styrkurinn miðast við 50% af efniskostnaði.
- Hámarksstyrkur er 1.337.000 kr.
- Niðurgreiðslur skerðast ekki við styrkveitinguna og haldast áfram í samræmi við notkun (að hámarki 40.000 kwh/ári).
- Styrkurinn er til 15 ára á viðkomandi fasteign að þeim tíma liðnum er hægt að sækja aftur um styrk á sömu fasteign.
Hvað er styrkhæfur kostnaður?
- Varmadæla
- Festingar og allur aukabúnaður með varmadælu
- Efniskostnaður frá rafvirkja
- Efniskostnaður frá pípara
- Flutningskostnaður varmadælunnar