Tilkynning | Borframkvæmdir við Sóltún
Selfossveitur munu fara í aðgerðir við borholu SE-46 við Sóltún á komandi vikum. Til stendur að reisa bor á holunni með það að markmiði að örva innrennsli í holuna og þannig bæta afköst hennar til að mæta þörfum stækkandi bæjarfélags.
Stefnt er á að borinn verði fluttur á staðinn mánudaginn 26. október nk. og að aðgerðir standi í 10 - 14 daga.
Til að tryggja öryggi gangandi vegvarenda þarf að leiða gangandi umferð fram hjá borplani um hjáleið.
Unnið verður á dagvöktum eða frá kl 7:30 til 19:30. Þessari aðgerð fylgja einhver óþægindi og biðjumst við velvirðingar á því.
Þökkum veittan skilning,
Selfossveitur

