Til allra verslunar- og þjónustufyrirtækja starfandi í sveitarfélaginu Árborg
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir því að áhugasöm verslunar- og þjónustufyrirtæki starfandi í sveitarfélaginu Árborg sendi tilboð í gjafabréf vegna jólagjafa starfsmanna.
Hjá sveitarfélaginu starfa um 1200 starfsmenn á um 38 vinnustöðum. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að velja tvö þeirra tilboð sem berast. Við mat á tilboðum verður horft til heildarverðmætis gjafabréfsins fyrir starfsmenn, þar á meðal verðmætis, notkunarmöguleika, aðgengis og skilmála. Sveitarfélagið leggur áherslu á að velja tvö efnislega ólík tilboð til að tryggja starfsmönnum aukið val. Starfsmenn hafa val um þessa tvo kosti og því liggur ekki fyrir fjöldi viðkomandi gjafar við gerð tilboðs.
Skilyrði fyrir þátttöku:
Eingöngu er tekið við tilboðum í innpökkuð gjafabréf
Skila þarf inn tilboðum fyrir 16. október 2026
Fyrirkomulag:
Tilboðin má senda á netfangið mannaudsdeild@arborg.is fyrir 16. október 2026
Sveitarfélagið greiðir 8.000 krónur fyrir hvert gjafabréf
Þau fyrirtæki sem senda inn tilboð fá upplýsingar um hvort þeirra tilboð hafi verið valið eða ekki þann 26. október
Fyrirtækin fá staðfestingu á fjölda gjafabréfa sem sveitarfélagið mun kaupa föstudaginn 13. nóvember
Fyrirtækin skila gjafabréfunum mánudaginn 7. desember í Ráðhús Árborgar
Með fyrirfram þökk,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri


