Útboð | Bjarkarland, gatnagerð og lagnir 2.áfangi 2020
Fyrir hönd Sveitafélagsins Árborgar er óskað eftir tilboðum í verkið |
Bjarkarland, gatnagerð og lagnir 2. áfangi 2020.
Verkið felur í sér gatnagerð og lagnavinnu í Bjarkarlandi á Selfossi, þ.e. gröft, fyllingar, burðarlög og malbikun gatna og stíga, lagningu stofnlagna og heimæða fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagna og götulýsingu.
Helstu magntölur eru
Gröftur 112.000 m³
Fyllingar 116.000 m³
Styrktar- og burðarlag 52.700 m³
Malbik 42.700 m²
Frárennslislagnir 6.800 m
Vatnslagnir 4.500 m
Hitaveitulagnir 4.500 m
Fjarskiptalagnir 12.600 m
Raflagnir götulýsingar 8.100 m
Götuljósastólpar 200 stk
Verkinu er áfangaskipt á eftirfarandi hátt
Áfangi A, Björkurstekkur 1. september 2021.
Áfangi B, Hólastekkur 1. september 2022.
Hitaveitutenging um Hólastekk skal að fullu lokið: 1. desember 2021.
Áfanga C, Hluti Móstekks 1. október 2023.
Áfanga D, Móstekkur kláraður: 1. júní 2024.
Verkinu skal að fullu lokið: 1. júní 2024.
Útboðsgögn verða afhend í útboðskerfinu Ajour þar sem bjóðendur geta sótt gögn frá og með 10. nóvember 2020.
Bjóðendur skrá sig inn á vef (Ajour system) og hlaða niður gögnum
Notkunarleiðbeiningar um kerfið má sjá hér
Tilboði skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um.
Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar.
Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.