Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Vinnuskóli Árborgar

Austurvegur 2b | 800 Selfoss
Símanúmer: 480 1951
Netfangvinnuskolinn@arborg.is 

Áhaldahús

Vinnuskóli Árborgar er starfræktur á sumrin en þar fá unglingar úr efstu bekkjum grunnskólanna tækifæri á að vinna við ýmiskonar verkefni sem eiga það sameiginlegt að gera sveitarfélagið okkar fegurra.

Hægt er að sækja um í gegnum skráningarkerfið Völu: Skrá í Vinnuskóla Árborgar

Leiðbeiningar fyrir skráningu í Vinnuskóla Árborgar

Megin hlutverk Vinnuskólans er að veita nemendum uppbyggileg sumarstörf ásamt fræðslu í öruggu starfsumhverfi. Öllum nemendum 8., 9. og 10. bekkja býðst að koma til starfa við fjölbreytt verkefni sem flest snúa að garðyrkju og umhirðu í sveitarfélaginu. Unglingar geta einnig sótt um þátttöku í Skapandi sumarstörfum. Í sumar stenst ungmennum fædd 2009 (17 ára) vinnu í vinnuskólanum.

Áhersla er lögð á að starfsumhverfið sé hvetjandi og ungmennin fái tækifæri til að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaðnum. Farið er yfir mikilvæga þætti eins og reglusemi, stundvísi, ábyrgðartilfinningu og hvernig bera eigi virðingu fyrir umhverfi sínu. Í lok sumars gefst nemendum kostur á að fá umsagnir um störf sín sem unnar eru af flokkstjórum Vinnuskólans og forstöðumanni Vinnuskólans.

Tímabilið er 15. júní - 16. júlí 2026 | Vinnutími og tímakaup

Vinnutími

2012: 3 tímar á dag mánudag - fimmtudags, annað hvort kl. 9:00 - 12:00 eða kl. 12:45 - 15:45 = 57 klst. (15. mín kaffitími kl. 10:30 og 15 mín. kaffitími kl. 14:30)

2011: 6 tímar á dag mánudag - fimmtudags kl. 9:00 - 15:45 = 114 klst. (15. mín kaffitími kl. 10:30 - hádegismatur kl. 12:00 - 12:45 - 15 mín. kaffitími kl. 14:30)

2010: 6 tímar á dag mánudag - fimmtudags kl. 9:00 - 15:45 og 3,5 tímar á föstudögum kl. 8:30 - 12:00 = 128 klst. (15. mín kaffitími kl. 10:30 - hádegismatur kl. 12:00 - 12:45 - 15 mín. kaffitími kl. 14:30)

2009: 6,25 tímar á dag mánudag - fimmtudags kl. 9:00 - 16:00 og 3,5 tímar á föstudögum kl. 8:30 - 12:00 = 132,5 klst. (15. mín kaffitími kl. 10:30 - hádegismatur kl. 12:00 - 12:45 - 15 mín. kaffitími kl. 14:45)

Tímakaup

  • 2012 eru með 1.122 krónur á tímann 
  • 2011 eru með 1.283 krónur á tímann
  • 2010 eru með 1.603 krónur á tímann 
  • 2009 eru með 3.206 krónur á tímann

Markmið vinnuskólans

  • Fegra og snyrta bæinn okkar
  • Gefa unglingum kost á vinnu, þjálfun og fræðslu í sumarleyfi sínu
  • Kenna unglingum fagleg vinnubrögð og meðferð verkfæra
  • Unglingarnir læri virðingu, stundvísi og aga á vinnustað
  • Unglingar læri að bera virðingu fyrir umhverfi sínu og bænum sínum
  • Viðhalda jákvæðri ímynd um vinnuskólann og gera hana enn jákvæðari

Skrifstofan 

Skrifstofa Vinnuskólans er stödd í félagsmiðstöðinni Zelsíuz að Austurvegi 2B. Þar starfa Hrafnhildur Svala “Raven” Sigurjónsdóttir forstöðumaður vinnuskólans, Rebekka Lind Daníelsdóttir þjónustufulltrúi og Alexander Freyr Olgeirsson umsjónaraðilar stuðningsúrræða. 

Símanúmerin á skrifstofunni eru:

480 1952
480 1951
vinnuskolinn@arborg.is 

Veikindi skal tilkynna í síma 480 1952 fyrir klukkan 09:00 á morgnana. Einnig er hægt að skrá veikindi í gegnum https://vinnuskoli-umsokn.vala.is/

Starfsreglur Vinnuskólans

  • Vinnuskólinn er tóbakslaus vinnustaður. Það gildir á leið í og úr vinnu, á vinnusvæði og í matar- og kaffitímum 
  • Mæta ber stundvíslega til vinnu og stunda hana samviskusamlega 
  • Fara vel með eignir Vinnuskólans og bera virðingu fyrir eignum annarra 
  • Ef um veikindi er að ræða skal forráðamaður tilkynna þau fyrir kl. 09:00 á morgnanna á skrifstofu skólans í síma 480 1951 eða 480 1952  
  • Notkun farsíma við vinnu er ekki heimil. Símar skulu vera stilltir á hljóðlaust og ekki notaðar sem samskiptatæki á vinnutíma Vinnuskólans. Engin ábyrgð er tekin á slíkum tækjum á vinnutíma. 
  • Engin ábyrgð er tekin á persónulegum hlutum sem komið er með til vinnu og eru ekki nauðsynlegir til starfsins.
  • Beiðni um leyfi eða frí afgreiðir Vinnuskólastjóri/verkstjóri á skrifstofu skólans 
  • Starfsfólk leggur sér sjálft til allan fatnað og skal hann vera samkvæmt aðstæðum og verkefnum
  • Öllum er ráðlagt að merkja fatnað og vinnuvettlinga, skó og stígvél. Vinnuskólinn skaffar ekki vettlinga en við mælum með því að keypt séu tvö pör í byrjun sumars sem duga á yfir sumarið 
  • Allir tilburðir til eineltis verða tilkynntir til skrifstofu Vinnuskólans um leið og þeir gerast. Við þá tilkynningu fer af stað verkferill vegna eineltismála. 
  • Unglingarnir eru á tímakaupi, ef þau sinna ekki vinnu sinni þrátt fyrir að vera á staðnum áskilur Vinnuskólinn sér rétt til að greiða ekki fyrir óunna vinnu.

Brot á starfsreglum Vinnuskólans getur þýtt brottvísun, að undangenginni áminningu.

  • Brjóti nemandi vísvitandi reglur vinnuskólans getur flokkstjóri áminnt nemandann og í samráði við verkstjóra vísað nemanda úr vinnu tímabundið, en endanleg brottvikning er í höndum vinnuskólastjóra í samráði við verkstjóra og flokkstjóra.
  1. Brottrekstur - haft samband við foreldra símleiðis. 
  2. Brottrekstur - fundur með forráðamönnum. 
  3. Brottrekstur rekin(n) út sumarið – samskipti við forráðamenn. 
  • Ef um alvarlegri brot er að ræða getur nemanda verið vísað úr vinnuskólanum á staðnum. Haft er samband við foreldra ef nemanda er vísað úr vinnu tímabundið eða endanlega. 
  • Ef eineltismál koma upp í vinnuskólanum verður farið eftir ákveðnum verkfe vinnuskólinn hefur útbúið sér. Slík mál eru ávallt unnin í samráði við foreldra viðkomandi.  
  • Ef foreldrar eða forráðamenn eru ósáttir við störf eða aðgerðir tengdar Vinnuskólanum þá skal hafa samskipti beint við skrifstofu Vinnuskólans. Ekki un dir neinum kringumstæðum skal hafa samband við flokkstjóra til að koma á framfæri gagnrýni eða kvörtunum. 
  • Í Vinnuskólanum er ekki bara unnið. Við höldum einnig fræðslur og lokahátíð þar sem boðið er upp á grill, leiki, þrautir og margt skemmtilegt. 
  • Líkt og seinasta ár mun Vinnuskólann safna í gagnabanka meðmælum fyrir alla starfsmenn Vinnuskólans. Nemendur Vinnuskóla geta þannig sett Vinnuskólann á ferilskrá og þegar sótt er um vinnu má benda á umsjónarmenn Vinnuskólans sem meðmælendur. Þeir sem standa sig vel fá auðvitað glimrandi meðmæli en þeir sem sýna litla virkni, metnað eða neikvætt viðhorf geta ekki búist við því að meðmælin verði jákvæð.

Vinnuskólinn hefst mánudaginn 15. júní 2026

Svæðaskipting Árborg | Sumar 2026(í vinnslu)

Svæði

  • 10.bekkur - Svæði 1 (Leikvöllur Miðtún)
  • Hópur 1a og 1b 8. bekkur - Svæði 3 (Tryggvagarður)
  • Hópur 2a og 2b 8. bekkur - svæði 10 (Leikvöllur Lóurima)
  • Hópur 3a og 3b 8. bekkur - svæði 17 (Leikvöllur í Kringlumýri)
  • Hópur 4a og 4b 8. bekkur - svæði 9 (Aðaltjörn/Langholt)
  • Hópur 5 – Stokkseyri
  • Hópur 1 – 9. bekkur Svæði 3 (Vallaskóli við Engjaveg)
  • Hópur 2 – 9. bekkur Svæði 3 (Vallaskóli við Aðalingang, Sólvöllum)
  • Hópur 3 – 9. bekkur Svæði 12 (Skatepark)
  • Hópur 4 – 9. bekkur - Svæði 12 (Aparóló)
  • D&D hópur - Svæði 11 (Sunnulækjarskóli)
  • 17 ára hópur - Svæði 7 (Stekkholt)

Fyrstu tveir dagarnir hjá 8. bekk í Vinnuskólanum

Þriðjudagur 10. júní - fræðsla um Vinnuskólann og hópefli

  • Kl. 9:00 - 12:00 HÓPAR 1a, 2a, 3a, 4a og 5a (8. bekkur fyrir hádegi). Mæting í félagsmiðstöðina Zelsíuz (Austurvegi 2b). Starfsfólk Vinnuskólans tekur á móti unglingunum og verður með fræðslu um Vinnuskólann og hópefli. Vinnudegi lokið kl. 12:00.
  • Kl. 12:45 - 15:45 HÓPAR 1b, 2b, 3b, 4b og 5b (8. bekkur - eftir hádegi). Mæting í félagsmiðstöðina Zelsíuz (Austurvegi 2b). Starfsfólk Vinnuskólans tekur á móti unglingunum og verður með fræðslu um Vinnuskólann og hópefli. Vinnudegi lokið kl. 15:45

Miðvikudagur 11. júní

  • Kl. 9:00 - 12:00 HÓPAR 1a, 2a, 3a og 4a (8. bekkur – fyrir hádegi). Mæting í Sigtúnsgarð þar sem flokkstjórar munu taka á móti þeim, úthluta vinnuvestum og leggja af stað í ruslatýnslu um bæinn. Vinnudegi lokið kl. 12:00. Hópur 5b mætir hjá Barnaskólanum á Stokkseyri.
  • Kl. 12:45 - 15:45 HÓPAR 1b, 2b, 3b, 4b og 5b (8. bekkur – eftir hádegi). Mæting í Sigtúnsgarð þar sem flokkstjórar munu taka á móti þeim, úthluta vinnuvestum og leggja af stað í ruslatýnslu um bæinn. Vinnudegi lokið kl. 15:45.

Við mælum með að unglingar hafi með sér nesti fyrir kaffihlé, vinnuhanska og klæða sig eftir veðri.

Fyrstu tveir dagarnir hjá 9. - 10. bekk í Vinnuskólanum

Þriðjudagur 10. júní

  • 9:00 - 12:00 9. bekkur HÓPAR nr. 1, 2, 3, 4, D&D hópur og 10. bekkur. Mæting í Sigtúnsgarð þar sem flokkstjórar munu taka á móti þeim, úthluta vinnuvestum og leggja af stað í ruslatýnslu og önnur verkefni um bæinn.
  • 12:00 - 12:45 hádegishlé (ef einhver hefur ekki tök á að fara heim í hádeginu er hægt að borða nestið sitt í félagsmiðstöðinni Zelsíuz).
  • 12:45 - 16:00 9. bekkur HÓPAR nr. 1, 2, 3, 4, D&D hópur og 10. bekkur. Mæting í Sigtúnsgarð þar sem flokkstjórar munu taka á móti þeim og haldið áfram í ruslatýnslu.

Miðvikudagur 11. júní - fræðsla um Vinnuskólann, hópefli og útivinna

  • Kl. 9:00 - 12:00 9. bekkur HÓPUR nr. 1, 2, 3 og 4 mæta í félagsmiðstöðina Zelsíuz (Austurvegi 2b) þar sem starfsfólk Vinnuskólans tekur á móti unglingunum og verður með fræðslu um Vinnuskólann og hópefli. D&D hópur og 10. bekkur mæta í Sigtúnsgarð þar sem flokkstjórar munu taka á móti þeim og haldið áfram í ruslatýnslu.
  • 12:00 - 12:45 hádegishlé (ef einhver hefur ekki tök á að fara heim í hádeginu er hægt að borða nestið sitt í félagsmiðstöðinni Zelsíuz).
  • 12:45 - 16:00 9. bekkur HÓPAR nr. 1, 2, 3 og 4 mæta í Sigtúnsgarð þar sem flokkstjórar munu taka á móti þeim og haldið áfram í ruslatýnslu. D&D hópur og 10. bekkur mæta í félagsmiðstöðina Zelsíuz þar sem starfsfólk Vinnuskólans tekur á móti unglingunum og verður með fræðslu um Vinnuskólann og hópefli.

Við mælum með að unglingar hafi með sér nesti fyrir kaffihlé, vinnuhanska og klæða sig eftir veðri.

Fyrstu tveir dagarnir hjá 17 ára hópi í Vinnuskólanum

Þriðjudagur 10. júní og miðvikudagur 11. júní

  • 9:00 - 12:00 Mæting við græna svæðið við Aðaltjörn og Langholt þar sem flokkstjórar munu taka á móti þeim, úthluta vinnuvestum og leggja af stað í ruslatýnslu og önnur verkefni um bæinn.
  • 12:00 - 12:45 hádegishlé (ef einhver hefur ekki tök á að fara heim í hádeginu er hægt að borða nestið sitt í félagsmiðstöðinni Zelsíuz).
  • 12:45 - 16:00 Mæting við græna svæðið við Aðaltjörn og Langholt þar sem flokkstjórar munu taka á móti þeim og haldið áfram í ruslatýnslu.

Við mælum með að unglingar hafi með sér nesti fyrir kaffihlé, vinnuhanska og klæða sig eftir veðri.

Fyrstu dagarnir í Skapandi sumarstörfum:

  • Fyrstu tvo dagana (þriðjudaginn 10. júní og miðvikudaginn 11. júní) verða skapandi sumarstörf með aðsetur í Sunnulækjarskóla. Það er mæting kl. 9:00 í Sunnulækjarskóla þar sem Þórunn Ösp og Ragnheiður Petra, flokkstjórar taka á móti þeim.
  • Kaffihlé kl. 10:30 og 14:30 og hádegishlé kl. 12:00 - 12:45 - ef einhver hefur ekki tök á að fara heim í hádeginu er hægt að borða nestið sitt í félagsmiðstöðinni Zelsíuz. Vinnudegi lýkur kl. 15:45
  • Fimmtudaginn 12. júní er svo mæting kl. 9:00 í ungmennahúsið Pakkhúsið (Austurvegi 2b) þar sem skapandi sumarstörf verða með aðsetur yfir allt sumarið.

Við mælum með að unglingar hafi með sér nesti og klæði sig eftir veðri. 


Hér má finna hópaskiptingu fyrir sumarið 2026

Hópur 1a - 8. bekkur fyrir hádegi

A

Hópur 1b - 8. bekkur eftir hádegi

A

Hópur 2a - 8. bekkur fyrir hádegi

A

Hópur 2b - 8. bekkur eftir hádegi

A

Hópur 3a - 8. bekkur fyrir hádegi

A

Hópur 3b - 8. bekkur eftir hádegi

B

Hópur 4a - 8. bekkur fyrir hádegi

A

Hópur 4b - 8. bekkur eftir hádegi

D

Hópur 5a - 8. bekkur BES fyrir hádegi

F

Hópur 1 - 9. bekkur

A

Hópur 2 - 9. bekkur

A

Hópur 3 - 9. bekkur

A

Hópur 4 - 9. bekkur

A

D&D hópur

E

10. bekkur

A

Skapandi sumarstörf

A

17 ára hópur

A

Fjörliðahópur

A

Fimleikadeild

B

Reiðskóli Jessicu

E

Gobbigobb - sveitanámskeið

D

Sumarfrístund Bifröst

B

Golfvöllur

A

Sumarfrístund - Bjarkarból

A

Knattspyrnuvöllur - Þjálfun

A

Sumarfrístund - Eldheimar

D

Knattspyrnuvöllur - Vallarstörf

G

Sumarfrístund - Hólar

B

Körfubolti

B

Sumarsmiðjur

B

Leikfélag Selfoss

A


Þetta vefsvæði byggir á Eplica