Fundargerðir til staðfestingar |
1. |
1801006 - Fundargerðir skipulags- og byggingarnefndar 2018 |
|
49. fundur haldinn 7. mars 2018 |
|
-liður 1, 1802241, breytingar á mannvirkjalögum. Bæjarráð tekur undir bókun skipulags- og byggingarnefndar þar sem tekið er undir sjónarmið Sambands íslenskra sveitarfélaga að víðtæk faggildingarkrafa frá og með 1. janúar 2019 muni þýða aukin útgjöld fyrir byggingaraðila og sveitarfélög. Nefndin tekur einnig undir þau sjónarmið sambandsins að tekin verði upp þrískipt flokkun á grundvelli stærðar og vandastigs.
Fundargerðin staðfest. |
|
|
|
2. |
1801003 - Fundargerðir fræðslunefndar 2018 |
|
42. fundur haldinn 8. mars |
|
Lagt fram. |
|
|
|
Fundargerðir til kynningar |
3. |
1802004 - Fundargerðir stjórnar SASS 2018
3-1802004 |
|
530. fundur haldinn 2. mars 2018 |
|
Lagt fram. |
|
|
|
4. |
1603040 - Bygging hjúkrunarheimilis í Árborg
4-1603040 |
|
Fundargerð verkkaupafundar, 11. fundur haldinn 2. mars 2018. |
|
Lagt fram. |
|
|
|
Almenn afgreiðslumál |
5. |
1803084 - Umsögn - frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu, rétt til einbýlis og sambúðar við maka á öldrunarstofnunum
5-1803084 |
|
Erindi frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 6. mars, þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til helbrigðisþjónustu (réttur til einbýlis og sambúðar við maka á öldrunarstofnunum), mál 178. |
|
Lagt fram. |
|
|
|
6. |
1803090 - Umsögn - tillaga til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga
6-1803090 |
|
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 8. mars, þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga, mál 200. |
|
Lagt fram. |
|
|
|
7. |
1803077 - Umsögn - tillaga til þingsályktunar um aðgengi að stafrænum smiðjum
7-1803077 |
|
Erindi frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn um þingsályktun um aðgengi að stafrænum smiðjum, mál 236. |
|
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslustjóra. |
|
|
|
8. |
1802044 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2018 |
|
Rekstraryfirlit og yfirlit yfir útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði - janúar |
|
Lagt fram. |
|
|
|
9. |
1606090 - Hringtorg og undirgöng við Eyraveg
9-1606090 |
|
Áskorun til Vegagerðarinnar og Samgönguráðuneytisins um að tryggja fjárframlag til framkvæmda við hringtorg á mótum Suðurhóla, Hagalækjar og Eyravegar og undirgöng undir Eyraveg í tillögum til fjárlaga fyrir árið 2019. |
|
Í ljósi þess að nú stendur yfir vinna innan ráðuneyta og ríkisstofnana við gerð tillagna til fjárlaga ársins 2019 vill bæjarráð Árborgar árétta fyrri bókanir sínar og erindi til fjárlaganefndar varðandi nauðsyn þess að gera hringtorg á mótum Eyravegar, Suðurhóla og Hagalækjar á Selfossi og undirgöng undir Eyraveg. Vegagerðin er veghaldari Eyravegar og beinir Árborg því til Vegagerðarinnar og Samgönguráðuneytisins að tryggt verði fjármagn eigi síðar en á fjárlögum 2019 til að gera megi hringtorg við téð gatnamót og undirgöng undir Eyraveg.
Mikil og hröð umferð bifreiða er af Eyrarbakkavegi inn á Eyraveg og umrædd gatnamót fjölfarin af gangandi og hjólandi vegfarendum, bæði börnum og fullorðnum. Hagahverfi er nú í mjög hraðri uppbyggingu og eykst því stórlega umferð gangandi og hjólandi barna um gatnamótin. Það er því verulega brýnt út frá öryggissjónarmiðum að ráðist verði í þessar framkvæmdir sem allra fyrst. |
|
|
|
10. |
1803109 - Útfærsla launaþróunartryggingar - hækkun launatöflu
10-1803109 |
|
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um samkomulag um útfærslu launaþróunartryggingar vegna aðildarfélaga ASÍ og BSRB, sem nemur 1,4% hækkun á launatöflu aðila frá 1. janúar 2018. |
|
Lagt fram. |
|
|
|
11. |
1803110 - Verkefnið Umhverfis Suðurland
11-1803110 |
|
Kynning á verkefninu sem er áhersluverkefni á vegum SASS. Beiðni um tilnefningu tengiliðar. |
|
Bæjarráð samþykkir að Auður Guðmundsdóttir verði tengiliður sveitarfélagsins vegna verkefnisins. |
|
|
|
12. |
1802132 - Þjónustusamningur - ráðgjafarvinna vegna innleiðingar á nýju persónuverndarlöggjöfinni GDPR
|
|
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra sveitarfélagsins að ganga frá samningi við Dattaca Labs ehf um ráðgjafarvinnu varðandi innleiðingu á nýju persónuverndarlöggjöfinni.
Skýrsla vegna persónuverndar |
|
|
|
Erindi til kynningar |
13. |
1803080 - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. 2018
13-1803080 |
|
Dagskrá aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. sem haldinn verður 23. mars á Grand Hótel Reykjavík. |
|
Bæjarráð felur Ástu Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra sveitarfélagsins, að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
|
|
|
|
14. |
1801017 - Orkunýtingarstefna SASS, endanleg útgáfa
14-1801017 |
|
Lagt fram. |
|
|
|