Bókabæirnir austanfjalls og Listasafn Árnesinga bjóða Margmála ljóðaspor
Alþjóðlegur dagur ljóðsins er 21.mars. Í tilefni af því ætla Bókabæirnir austanfjalls að halda Margmála ljóðadagskrá í Listasafni Árnesinga í Hveragerði kl 15.
Þar mun m.a. koma fram fólk frá átta þjóðlöndum og lesa upp ljóð á eigin tungumáli.





