Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Eyrarbakkaljósmyndir Sigurðar kaupmanns

  • 27.3.2021 - 30.5.2021, Byggðasafn Árnesinga

Sigurður Kristjánsson (1896 - 1977) kaupmaður á Eyrarbakka var áhugaljósmyndari sem tók myndir af sínu nánasta umhverfi hvort sem það var fjölskyldan, heimilið, þorpið eða hátíðarhöld.

  • Sigurdurnr1b

Athyglisverðar eru ljósmyndir hans af gömlum húsum og staðsetningu þeirra sem gefa einstakt sjónarhorn á Eyrarbakka um miðja 20. öld. Mörg húsanna sem Sigurður fangaði með ljósmyndavél sinni eru nú horfin.

Sýningin er unnin í samvinnu við eiganda myndanna Jón Sigurðsson fangavörð son ljósmyndarans. 

Sýningin stendur til maíloka. Opið verður kl. 14 - 17 um páskana frá 27. mars til 5. apríl. Sýningin verður einnig opin á menningarhátíðinni Vor í Árborg dagana 22. til 25. apríl.
Í maí verður opið kl. 14 - 17, laugardaga og sunnudaga. Utan þessara tíma verður hægt að skoða safnið og sýninguna eftir samkomulagi.  

Aðgangur ókeypis um páskana. 

Fjöldatakmarkanir eru vegna sóttvarnareglna. Aðeins 10 gestir, að undanskildum börnum fædd 2015 og síðar, mega vera í hverju rými safnsins. Grímuskylda er.

Sýningin er haldin í borðstofu Hússins á Eyrarbakka.

Sigurdurnr2b


Viðburðadagatal

7.9.2024 - 6.10.2024 Byggðasafn Árnesinga Gullspor í Sjóminjasafninu

September mánuður á Sjóminjasafninu verður tileinkaður arfleið gull- og silfursmiða í héraðinu.

Sjá nánar
 

19.9.2024 20:00 - 22:00 Hvítasunnukirkjan Selfossi Alpha Youth - Alfa fyrir unglinga

10 vikna námskeið sem fjallar um ólíka þætti kristinnar trúar.

Sjá nánar
 

21.9.2024 11:00 - 12:00 Bókasafn Árborgar, Selfoss Kúkur, piss og prump í Bókasafninu

Sævar Helgi Bragason kemur í heimsókn á Bókasafn Árborgar Selfossi og les úr nýjustu bókinni sinni Kúkur, piss og prump.

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica