Fluguhnýtingar með Fluguveiðifélagi Árborgar
Laugardaginn 14.mars kl. 11:00 verða Hinrik Óskarsson og félagar úr Fluguveiðifélagi Árborgar með kynningu á fluguhnýtingum á Bókasafninu á Selfossi.
Kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja hnýta sínar eigin flugur.
Allt efni verður á staðnum og sýnd helstu verkfæri og aðferðir.
Verið öll velkomin!





