Gulur september | Ganga í Hellisskógi 10. september kl. 18:00
Ferðafélag Árnesinga stendur fyrir þremur göngum í september í tilefni af gulum september, gulur er litur sjálfsvígsforvarna. Í ár er þemað geðrækt á vinnustöðvum og eitt af því sem fólk er kvatt til að gera er að stunda reglulega hreyfingu.
Fyrsta gangan verður í Hellisskógi við Selfoss miðvikudaginn 10. september kl. 18.
Hittumst við bílastæðið í Hellisskógi og tökum þægilegan hring þar sem tekur um 1 klst. Fínt að skella einhverju í pottana fyrir göngu og mæta síðan beint í kvöldmat eftir göngu.