Listasmiðja og opið hús | Myndlistarfélag Árnessýslu
Myndlistarfélag Árnessýslu verður með opið hús og listasmiðju á sumardaginn fyrsta.
Sumardagurinn fyrsti hjá Myndlistarfélagi Árnessýslu!
Fagnaðu sumrinu með okkur í notalegu og skapandi umhverfi
Opið milli kl. 11:00–13:00
Sandvíkursetur, Selfossi, gengið inn um hurðina beint á móti bílastæðinu bakvið Landsbankann.
Dagskrá:
– Listasmiðja fyrir börn og forráðamenn
– Heitt á könnunni
– Listaverk til sýnis í vinnustofunni, í Gallerý Gang
Öll börn eru hjartanlega velkomin, þetta er frábært tækifæri til að skapa, njóta og eiga góða stund saman.
Komdu og taktu á móti sumrinu með litum, gleði og góðum félagsskap!
Öll velkomin, hlökkum til að sjá þig!





