Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Máttugar meyjar | Bókmenntahátíð Konubókastofu

  • 15.4.2023 - 23.4.2023, Eyrarbakki

Dagskrá bókmenntahátíðar 15. - 23. apríl

Laugardagur 15. apríl

kl. 14:00 | Rappnámskeið í Gömlu kartöflugeymslunni, Eyrarbakki
Þær Steinunn og Ragga úr Reykjavíkurdætrum munu kenna börnum í 4.- 7. bekk textasmíð og flutning.
Við byrjum á því að fræða þátttakendur um rapptónlist og textasmíð og leggjum áherslu á hugtökin inntak, flæði og flutningur,“ segja þær aðspurðar um efni námskeiðsins. „Seinni hluti smiðjunnar fer í það að semja erindi undir okkar handleiðslu og að flytja það.“  
Skráning á rappnámskeiðið

Fimmtudagur 20. apríl

kl. 16:00 | Handavinnustund í Konubókastofa, Eyrarbakki
Gestir eru hvattir til að sinna sinni handavinnu á meðan hlustað er á höfundana Elísabetu Steinunni Jóhannsdóttur Sörensen og Ragnheiði Lárusdóttur sem lesa úr verkum sínum. Þá mun Anna Kristín Hannesdóttir lesa úr þýðingu sinni á verkunum Hinstu blíðuhót og Augnablik í eilífðinni eftir Kjersti Anfinnsen.

Laugardagur 22. apríl

kl. 14:00 | Ritsmiðja fyrir börn í Skrúfunni, Eyrarbakki
Linda Ólafsdóttir teiknari, málari  og rithöfundur stýrir ritsmiðju fyrir börn.

kl. 16:00 | Fjölskyldujóga í Gömlu kartöflugeymslunni, Eyrarbakki
Fjölskyldujóga í umsjón Evu Daggar Atladóttur í Gömlu kartöflugeymslunni. Eva Dögg Atladóttir hefur lært hatha yoga úti á Indlandi í Sivananda Yoga Centre en Swami Sivananda var læknir sem kenndi helstu yoga stöðurnar til að hafa fullkomna heilsu. Eva Dögg ætlar að kenna þessar stöður og fræða okkur um þær, jafnframt því að kynna nokkrar yoga bækur og fá nemendur efni úr þeim. Djúp slökun og möntrusöngur í lokin.

kl. 19:30 | Konukvöld í Rauða Húsinu, Eyrarbakki | “Leyndardómur yndisþokkans”
Á Konukvöldinu verður höfðað til yngri kvenna með ýmsum hætti. Sæbjörg Eva Hlynsdóttir sér um tónlistaratriði. Spunahópurinn Eldklárar og eftirsóttar treður upp og kynnir meðal annars væntanlega ljóðabók sína. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir les úr bók sinni Getnaði.
Hallgerður Freyja Þorvaldsdóttir mun lesa upp úr bók sem var skrifuð til að kenna ungum konum að koma fram og fleira. Eva Katrín kynnir Eva´s Breath og ýmislegt fleira.
Miðasala er á tix.is og eru fordrykkur, gjafapoki og léttar veitingar innifalin í miðaverði.

Sunnudagur 23. apríl

kl. 14:00 | Afmælishátíð, ráðskonur og morð í Rauða Húsinu, Eyrarbakki

Gestum er boðið til samtals við rithöfundana Hönnuh Kent og Þórunni Valdimarsdóttur í Rauða Húsinu.
Fjallað verður um verk þeirra í opnu samtali, sameiginlega snertifleti og opnað fyrir spurningar úr sal.

Viðburðurinn er hluti af Bókmenntahátíð í Reykjavík.
Þá mun sagnfræðingurinn Dalrún Kaldakvísl fjalla um doktorsrannsókn sína á ráðskonum í sveit á síðari hluta 20. aldar. Meginheimildir rannsóknarinnar eru viðtöl sem Dalrún tók við 41 fyrrum ráðskonu. Í erindi sínu beinir hún sjónum að félagslegri stöðu ráðskvenna í sveit, með því að reifa ýmsa þætti sem einkenndu stöðu ráðskvenna, bæði áður en þær réðu sig til starfa sem ráðskonur sem og á meðan ráðskonuvist þeirra stóð. Það hefur hallað mikið á konur í Íslandssögunni og því hefur Dalrún sérstaklega beitt sér fyrir því að taka sagnfræðiviðtöl sem hverfast um líf kvenna.
Að lokum verður gestum boðið til afmælisveislu með veglegum veitingum.

Listaverk Heru Fjord verður í Rauða Húsinu laugardag og sunnudag


Viðburðadagatal

14.5.2025 20:00 - 21:00 Skálinn Strandahlaup 2025

Strandarhlaup Ungmennafélags Stokkseyrar við Skálann verður haldið fjóra miðvikudaga í röð.

Sjá nánar
 

16.5.2025 9:30 - 11:00 Barnaskólinn | Stokkseyri Barnabær | Uppskeruhátíð

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri býður til lokahátíðar Barnabæjar.

Sjá nánar
 

20.5.2025 19:00 - 21:00 Sviðið Listin að vera leiðinlegt foreldri

Ársæll Már Arnarson prófessor við Háskóla Íslands heldur fræðsluerindi fyrir foreldra og öll sem láta sig málið varða!

Sjá nánar
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica