Sumarbúðir Íþróttasambands fatlaðra 2025
Sumarbúðir ÍF verða haldnar í 40. sinn í sumar þar sem við höldum áfram frábærri stemningu og skemmtun á Laugarvatni.
Búðirnar hafa verið fastur liður hjá ÍF og eru alltaf jafn vinsælar en með takmörkuðu plássi. Í ár er boðið upp á tvö vikunámskeið: 20. - 27. júní og 27. júní - 4. júlí.
Sumarbúðirnar eru fyrir öll sem hafa gaman af félagsskap, hreyfingu, útivist og vilja skapa góðar minningar í öruggu og jákvæðu umhverfi.
Allir fötlunarhópar og einstaklingar allsstaðar af landinu eru velkomnir en ný húsakynni sumarbúðanna hafa slegið í gegn og þar líður öllum vel.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á vefsíðunni ifsport.is og á facebooksíðu sumarbúðanna.