Sumarlestur 2025
Sumarlestur Bókasafns Árborgar Selfossi hefst með prompi og prakt þann 11. júní þegar við fáum Ævar Þór Benediktsson í heimsókn!
Sumarlestur er fyrir börn á aldrinum 8 - 11 ára og er 11., 18. og 25. júní
Þátttakendur geta mætt fyrir hádegi kl. 11 eða eftir hádegi kl. 13 og hvert skipti stendur yfir í u.þ.b. klukkutíma.
Við fáum gesti, tökum þátt í happdrætti, spilum leiki og fyrst og fremst verður stuðlað að því að viðhalda lestrarhæfni og kynna ævintýraheim bóka fyrir börnunum. Þátttaka er ókeypis.
Skráning er nauðsynleg en mæting er alveg frjáls, t.d. ef þátttakandi kemst bara í suma tímana.

Skráning hér: https://forms.gle/sJQE6HF8KR1oHrb87