Vortónleikar á Bókasafni Árborgar, Selfossi 4. maí
AB Strengjasveit Tónlistarskóla Árnesinga heldur vortónleika sína í Bókasafni Árborgar, Selfossi mánudaginn 4. maí kl 15:00.
Í strengjasveitinni eru 12 fiðlu, víólu og sellókrakkar á grunnstigi á aldrinum 8 - 17 ára. Þau koma héðan og þaðan úr Árnessýslu og hafa verið á þessari vorönn að æfa nokkur lög og ætla að leyfa gestum bókasafnsins að njóta afrakstursins.





