112 dagurinn er í dag | ofbeldi og rétt samskipti
Áhersla dagsins í ár er á ofbeldi og viðbrögð við því og jafnframt að miðla fræðslu um rétt samskipti við neyðarverði 112.
Neyðarverðir eru þeir fyrstu sem samband fæst við þegar hringt er í 112 og þar með mjög mikilvægir hlekkir í viðbragðskeðjunni.
Samstarfsaðilar dagsins eru Neyðarlínan, lögreglan, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, slökkviliðin, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Barna- og fjölskyldustofu, Landlæknisembættið, Landspítalinn, Heilsugæslan, Vegagerðin, Æskulýðsvettvangurinn og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.