3.flokkur karla í knattspyrnu bikarmeistari
Leikmenn 3.flokks karla í knattspyrnu fengu afhenta viðurkenningu frá Sveitarfélaginu Árborg fyrir góðan árangur en liðið varð bikarmeistari á dögunum.
Liðið sem er samstarf Umf. Selfoss, Hamars og Ægis vann bikarmeistaratitilinn eftir frækinn 8-7 sigur á FH eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni.
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri afhenti strákunum í 3.flokki og þjálfurum viðurkenningu fyrir góðan árangur áður en þeir lögðu af stað í lokaferð hópsins þetta tímabilið.