6000 gildar umsóknir um 53 lóðir í Björkurstykki
Nú er lokið yfirferða þeirra nærri 10.000 umsókna sem bárust um 53 lóðir í Björkurstykki. Eftir yfirferð teljast um 6.000 umsóknir vera gildar.
Stefnt er að því að dregið verði úr umsóknum á aukafundi skipulags- og byggingarnefndar mánudaginn 31. maí. Við útdráttinn verður notast við rafrænt kerfi sem samþykkt er af Sýslumanninum á Suðurlandi og verður fulltrúi Sýslumanns viðstaddur þegar dregið verður úr gildum umsóknum.
