9. mánaða rekstraruppgjör Sveitarfélagsins Árborgar
Bæjarráð Árborgar fjallaði um 9. mánaða rekstraruppgjör sveitarfélagsins á 16. fundi ráðsins fimmtudaginn 3. nóvember síðastliðinn.
Staða Sveitarfélagsins Árborgar er líkt og hjá öðrum sveitarfélögum erfið í ljósi hækkandi verðbólgu og vaxta.
Niðurstaða aðalsjóðs sveitarfélagsins eftir níunda mánuð er halli upp á 2.393,8 milljónir króna eða rétt tæplega 2,4 milljarða. Samþykkt fjárhagsáætlun ársins 2022 gerði ráð fyrir halla upp á 2.164,7 millj. kr. og eru því frávik í aðalsjóði neikvæð um 229,1 millj. Kr.
Líkt og sjá má hér að neðan fær sveitarfélagið um 232 millj. kr. í skatttekjur umfram áætlun sem er jákvætt. Á móti eru neikvæð frávik upp á um 263 milljónir í fjármagnsgjöldum og 214 milljónir í fræðslu- og uppeldismálum. Frávik annarra málaflokka eru lægri í jákvæða og/eða neikvæða átt.
Rekstrarstaða Svf. Árborgar er erfið líkt og uppgjörið sýnir og tekur öll vinna bæjarfulltrúa og starfsmanna í dag og við fjárhagsáætlun 2023 mið af því.
Stefna nýrrar bæjarstjórnar er að allir málaflokkar séu innan árlegrar fjárheimilda til framtíðar. Samhliða vinnu við fjárhagsáætlun 2023 er unnið að 10 ára fjármálastefnu sveitarfélagsins og er stefnt að því að kynna hana á næstu vikum.
Frávik einstakra málaflokka í aðalsjóði:
- Frávik í skatttekjum eru jákvæð um 232,4 millj.kr.
- Frávik í félagsþjónustu eru neikvæð um 13,7 millj.kr.
- Frávik í fræðslu- og uppeldismálum eru neikvæð um 214,2 millj.kr.
- Frávik í menningarmálum eru neikvæð um 7,8 millj.kr.
- Frávik í æskulýðs- og íþróttamálum eru neikvæð um 24,7 millj.kr.
- Frávik í brunamálum og almannavörnum eru neikvæð um 4,9 millj.kr.
- Frávik í hreinlætismálum eru jákvæð um 6,3 millj.kr.
- Frávik í skipulags- og byggingarmálum eru jákvæð um 28,9 millj.kr.
- Frávik í umferðar- og samgöngumálum eru jákvæð um 7,5 millj.kr.
- Frávik í umhverfismálum eru jákvæð um 18,4 millj.kr.
- Frávik í sameiginlegum kostnaði eru jákvæð um 4,6 millj.kr.
- Frávik í atvinnumálum eru jákvæð um 9,1 millj.kr.
- Frávik í lífeyrisskuldbindingum eru neikvæð um 9,5 millj.kr.
- Frávik í fjármunatekjum og fjármagnsgjöldum eru neikvæð um 263,4 millj.kr