Ábendingar frá íbúum óskast
Sveitarfélagið Árborg vinnur að umferðaröryggisáætlun samhliða endurskoðun á aðalskipulagi Árborgar. Tilgangurinn er að finna og greina hættustaði í umferðinni.
Nú þarf að fá ábendingar frá íbúum um hættulega staði á götum og stígum í sveitarfélaginu. Við höfum sett upp ábendingasvæði fyrir verkefni á Betri Árborg, samráðsvettvangi sveitarfélagsins við íbúa. Með samvinnu finnum við fleiri hættur. Smelltu hér til að skrá þína ábendingu inná Betri Árborg.