Aðgengi að sorptunnum
Íbúar eru hvattir til að auðvelda aðgengið með því að moka vel frá sorptunnum og sorpgeymslum til að auðvelda aðgengi sorphirðu verktaka. Víða hefur borið á því að það sé ekki gert og því er sorp ekki hirt hjá þeim aðilum.
Einnig þarf að athuga hvort hurðir og lásar á sorpgeymslum séu nokkuð frosnir og hindri þannig starfsfólki að komast að tunnunum.
Athugið að opnunartíma gámasvæðis má finna á bláa hnappnum til vinstri á forsíðu og undir Íbúar > Umhverfismál > Sorphirða
