Alþjóðadagur fatlaðs fólks 2022
Alþjóðadagur fatlaðra er haldinn um heim allan 3. desember. Fyrsti alþjóðlegi dagur fatlaðs fólks var haldinn af Sameinuðu þjóðunum árið 1992.
Þroskahjálp hefur óslitið frá árinu 1993 haldið uppá þennan dag með því að veita Múrbrjóta þeim aðilum sem þykja hafa sýnt frumkvæði og ýtt undir nýsköpun varðandi þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu og þannig sýnt samfélagslega ábyrgð.
Sveitarfélagið Árborg fagnar fjölbreytileikanum og leggur áherslu á þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu með því að veita viðeigandi stuðning í almennri og sértækri þjónustu.