Sköpunarkrafturinn glæðir skammdegið lífi: Menningarmánuðurinn október framundan
Sveitarfélagið Árborg býr sig undir einn líflegasta tíma ársins. Sú hefð að hampa menningu í október á rætur sínar að rekja til ársins 2010 og er þetta því sautjándi menningarmánuðurinn.
Íbúar fá tækifæri til að kynnast fjölbreyttu listafólki og uppgötva þá grósku sem einkennir menningarstarfsemi sveitarfélagsins. Það vita kannski ekki allir að í Árborg starfa meðal annars ljósmyndaklúbbur, myndlistarfélag, þrjú leikfélög og níu kórar.
Menningarstarf er dýrmætt og er einn af þeim þáttum sem gera sveitarfélög að litríkum og aðlaðandi stað til að búa á. Í sveitarfélaginu Árborg býr breiður og öflugur hópur listafólks og laugardaginn 17. október opna fjölmargir listamenn vinnustofur sínar fyrir íbúum á viðburðinum Listaflakk um Árborg.
Samfélag sem opnar faðminn
Í ár ber dagskráin vott um samfélag sem stækkar og dafnar. Tveir stórviðburðir munu setja svip sinn á mánuðinn og tengja okkur við umheiminn á nýjan hátt.
Fyrst ber að nefna Kvikmyndahátíð barnanna, KIDS FOR FILMS, sem fer fram helgina 10.-11. október í Bíóhúsinu á Selfossi. Þar verða sýndar 24 stuttmyndir frá öllum heimshornum. Hátíðin gefur yngstu kynslóðinni tækifæri til að skyggnast inn í ólíka menningarheima og upplifa töfra kvikmyndalistarinnar í heimabyggð, sér að kostnaðarlausu.
Fyrsta Fjölmenningarhátíð Árborgar
Annar sögulegur hápunktur verður laugardaginn 10. október frá kl. 14-17 þegar fyrsta Fjölmenningarhátíð Árborgar verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Þar mun fólk af ólíkum uppruna deila matarsmakki, menningararfleifð og hefðum. Hátíðin býður okkur að kynnast nágrönnum okkar betur og fagna því ríkidæmi sem felst í fjölbreytileikanum.
Leikfélögin á Eyrarbakka og Selfossi ætla bæði að frumsýna leikverk í október og á Bókasafni Árborgar Selfossi verður mikil stemning þegar Birgitta Haukdal mætir 17. október til að lesa og syngja fyrir börnin. Króli hittir 9. bekkinga í grunnskólum Árborgar, Bókakaffið heldur upp á 20 ára afmæli, Björgvin Þ. Valdimarsson býður upp á sögugöngu og Byggðasafn Árnesinga tekur þátt ásamt fleiri stofnunum og félagasamtökum í Árborg.
Styðjum menningu með því að mæta
Það er einstök tilfinning að finna hvernig samfélagið lifnar við þegar menningarmánuðurinn gengur í garð. Við hvetjum íbúa og gesti til að taka þátt, mæta á viðburði og styðja það fjölbreytta menningarstarf sem fram fer í sveitarfélaginu. Viðburðir bætast stöðugt við í dagskrána sem má finna á www.arborg.is/vidburdalisti. Gleðilegan menningarmánuð!

