Alþjóðadagur safna 18. maí
Söfn eru í stöðugri endurnýjun í viðleitni sinni til að verða gagnvirkari, áhorfendamiðaðri, samfélagslegri, sveigjanlegri, aðlögunarhæfari og hreyfanlegri stofnanir. Þau hafa breyst í menningarmiðstöðvar sem skapa umhverfi þar sem sköpunargleði er sameinuð þekkingu og þar sem gestir geta einnig skapað með öðrum, deilt og átt samskipti. Þetta er fókusinn á alþjóðlega safnadeginum 18. maí.
Listasafn Árnesinga Á boðstólum eru tvær sýningar, Einu sinni var... og Mismunandi endurómun, og tveir dagskrárliðir sem gestir geta tekið þátt í, vinnustofa í vatnslitamálun og leiðsögn/sýningarspjall um sýninguna Mismunandi endurómun. Byggðasafn Árnesinga Í tilefni safnadagsins þann 18. maí verður gestum og gangandi boðið uppá leiðsögn um Litla-Hraun, sögusýningu í Húsinu á Eyrarbakka.

