Ályktun fræðslunefndar um framkvæmd samræmdra prófa
Á aukafjarfundi kjörinna fulltrúa í fræðslunefnd Sveitarfélagsins Árborgar fimmtudaginn 11. mars 2021 var eftirfarandi ályktun, um framkvæmt samræmdra prófa, samþykkt.
Það er óásættanlegt að við framkvæmd samræmdra prófa sé ítrekað notast við óviðunandi prófakerfi sem skapar aukið álag fyrir nemendur, kennara og skólastjórnendur. Jafnframt raskar frestun prófanna öllu skipulagi skólanna, svo sem kennsluáætlunum og gildandi skóladagatali.
Fræðslunefnd leggur áherslu á að kerfið verði tekið sem fyrst til gagngerrar endurskoðunar og að allt námsmat verði sem mest í formi leiðsagnarmats og vinni þannig í anda hugmyndafræðinnar um skóla án aðgreiningar. Ætíð verði hugað að vellíðan nemenda, leiðbeinandi námsmati og námsframframförum hvers og eins.
Arna Ír Gunnarsdóttir
Gunnar Rafn Borgþórsson
Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson
Brynhildur Jónsdóttir
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir