Anna Valgerður Sigurðardóttir ráðin til starfa sem mannauðsráðgjafi
Anna Valgerður mun starfa á mannauðs- og launadeild Árborgar og tilheyra fjögurra manna teymi sem veitir stoðþjónustu þvert á alla vinnustaði sveitarfélagsins.
Anna Valgerður hefur lokið meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands og er að ljúka grunnnámi í markþjálfun hjá Profectus. Anna Valgerður starfaði áður sem verkefnastjóri og teymisstjóri fyrirtækjaþjónustu hjá Fræðslunetinu þar sem hún stýrði m.a. fræðslugreiningum og mannauðsráðgjöf með áherslu á starfsþróun ásamt ráðningum á leiðbeinendum.
Anna Valgerður er einnig með kennararéttindi og hefur góða þekkingu og reynslu af kennslu og fræðslumálum. Hún hefur starfað sem kennari í Sunnulækjaskóla og Fjölbrautaskóla Suðurlands ásamt því að hafa starfað sem verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Suðurlands. Anna Valgerður hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af teymisvinnu og hefur m.a. sinnt teymisþjálfun hjá Setrinu í Sunnulækjarskóla.
Anna Valgerður hefur á starfsferli sínum öðlast mikla þekkingu og reynslu sem mun nýtast vel í starfi mannauðsráðgjafa ásamt því að hafa menntun sem nýtist vel í starfi.
Við bjóðum Önnu Valgerði innilega velkomna til starfa.