Áramóta- og þrettándabrennum aflýst í Árborg en boðið upp á flugeldasýningar
Sveitarfélagið Árborg hefur ákveðið að aflýsa fyrirhuguðum áramótabrennum á Selfoss, Stokkseyri og Eyrarbakka þetta árið ásamt þrettándabrennu í ljósi sóttvarnaaðgerða í samfélaginu. Þó verður boðið upp á flugeldasýningar í öllum þéttbýliskjörnum.
Flugeldasýningar verða á eftirfarandi stöðum í Sveitarfélaginu Árborg í kringum áramótin:
- Af bryggjusporðinum á Eyrarbakka kl. 20:00 þann 28.desember 2020 í umsjón Björgunarsveitarinnar Bjargar á Eyrarbakka
- Af Stóra-hól á Selfossi kl. 17:00 þann 31.desember 2020 í umsjón Björgunarfélags Árborgar
- Af bryggjusporðinum á Stokkseyri kl. 20:00 þann 2. janúar 2021 í umsjón Björgunarfélags Árborgar
- Af Stóra-hól á Selfossi kl. 20:30 þann 6.janúar 2021 í umsjón Ungmennafélags Selfoss í góðri samvinnu við Björgunarfélag Árborgar og Sveitarfélagið Árborg.
Þar sem flugeldasýningarnar eiga að sjást vel á stóru svæði eru íbúar og gestir vinsamlegast beðnir um að virða fjöldatakmarkanir og 2 metra regluna, vera í bílum þar sem það er hægt og með andlistgrímur þar sem þarf líkt og sóttvarnarreglugerðir segja til um.
Gleðilega hátíð