Áramótabrennum og flugeldasýningu í Árborg aflýst 2022
Vegna veðurs verður áramótabrennum og flugeldasýningu Árborgar aflýst í ár.
Spáin gerir ráð fyrir vestan 10 - 18 m/s en sums staðar verður hvassara í dimmum éljum og skafrenningi þegar líður á kvöldið, með líkum á samgöngutruflunum. Vaxandi vindur og aukin ofankoma verður samkvæmt Veðurstofu á gamlárskvöld og nýársnótt.