Árborg er frumkvöðlasveitarfélag
Þann 15. mars síðastliðinn var haldinn fundur með fulltrúum frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, Barna- og fjölskyldustofu, Sambandi Íslenskra sveitarfélaga og fulltrúum í farsældarteymi Árborgar.
Sveitarfélagið Árborg er eitt af fjórum frumkvöðlasveitarfélögum á Íslandi í innleiðingu samþættar þjónustu í þágu farsældar barna.
Markmiðið með fundinum var að taka stöðuna á innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna í Árborg og var mikil ánægja með stöðu innleiðingarinnar í Árborg.