Árborg gegn ofbeldi
Barnavernd Árborgar, lögregla og þeir aðilar sem koma að málefnum barna hafa orðið vör við aukningu í ofbeldishegðun ungmenna í Árborg.
Dæmi eru um alvarleg atvik sem hafa haft mikil áhrif á þolendur, gerendur og vitni
Við sem komum að málefnum barna í sveitarfélaginu köllum eftir samstarfi við foreldra og forráðarmenn ungmenna, ásamt ungmennunum sjálfum í að snúa við þessari þróun. Mikilvægt er að við tökum öll höndum saman við að styrkja það unga fólk sem við eigum hér í Árborg.
Meðfylgjandi er stutt fræðslumyndband frá fulltrúum frá barnavernd, lögreglu og sjúkraflutningum varðandi þá þætti sem gott er fyrir alla sem koma að málefnum barna að hafa vitneskju um.
Fyrir hönd sveitarfélagsins
Anna Rut Tryggvadóttir teymisstjóri barnaverndar
Díana Gestsdóttir lýðheilsu- og forvarnarfulltrúi