Aspir við Austurveg
Líkt og fram kom í fréttatilkynningu sem birtist á fréttavef DFS í gær þá þarf að fella nokkrar aspir við Austurveg. Aspirnar standa við gangbrautir og var það mat bæði Lögreglu og Vegagerðar að þær stefni öryggi gangandi vegfarenda í hættu. Alls er um að ræða 9 stórar aspir.
Bréf Lögreglu þar sem bent var á þessa hættu var tekið fyrir á fundi umhverfisnefndar þann 30. júní síðastliðinn og tók umhverfisnefnd undir áhyggjur Lögreglu.
Nýlega áttu bæjarstjóri og sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs fund með Vegagerðinni á Suðurlandi og vöktu fulltrúar Vegagerðarinnar athygli á þeirri hættu sem stafaði af því að aspirnar byrgðu sýn. Bæjarstjóri og sviðsstjóri samþykktu þá að fella þær aspir sem um ræddi.
Austurvegurinn mun taka miklum breytingum á næstu árum í tengslum við byggingu nýrrar brúar yfir Ölfusá og afhendingu Austurvegar til bæjarins í því sambandi. Í öllum þeim breytingum verður haft að leiðarljósi að Austurvegur verði fallegt stræti þar sem íbúar og gestir þeirra geti notið þjónustu og verslunar í góðu umhverfi. Þar mun trjágróður án efa gegna mikilvægu hlutverki.