Auður I. Ottesen hlaut menningarviðurkenningu Svf. Árborgar 2022
Föstudaginn 22. apríl sl. afhenti fulltrúi frístunda- og menningarnefndar Svf. Árborgar menningarviðurkenningu sveitarfélagsins fyrir árið 2022.
Í ár hlaut Auður I. Ottesen ritstjóri, markaðsstjóri, formaður, meðstjórnandi og eigandi Sumarhúsið og garðurinn viðurkenninguna.
Frá því að Auður flutti til Selfoss 2011 hefur hún verið virk í viðburða- og námskeiðahaldi bæði í sveitarfélaginu og utan þess. Með menntun sem húsgagna- og húsasmiður, garðyrkjufræðingur, þátttöku í fjölda námskeiða og handhafi PDC, Permaculture Design Certificate ber Auður marga titla og lætur til sín taka hvar sem hún mætir.
Hjónin Auður og Páll Jökull eiga útgáfu og þjónustufyrirtækið Sumarhúsið og garðurinn og stendur Auður í dag fyrir útgáfu tímarits og bóka, heldur námskeið og stýrir sýninga- og ráðstefnuhaldi fyrir ólíka hópa af öllum stærðum.
Tímaritið Sumarhúsið og garðurinn kom fyrst út árið 1993 og fyrstu sjö árin var tímaritinu dreift frítt til sumarhúsaeigenda undir nafninu Sumarhúsið. Árið 2009 bættist svo við farsælt námskeiðahald hjá Auði, meðal annars í ræktun mat- og kryddjurta. Um 1700 nemendur hafa sótt námskeið Sumarhússins og garðsins sem haldin hafa verið víða um land.
Samvinnuverkefni Sumarhússins og garðsins og Sveitarfélags Árborgar
Árið 2014 óskaði Auður eftir samstarfi við Sveitarfélagið Árborg við að koma upp grenndargörðum á Selfossi til að efla þátttöku íbúa í ræktun á matjurtum. Auður hefur haldið utan um skipulagningu og viðhald á grenndargörðum á Selfossi. Auður hefur einnig verið í forsvari fyrir gróðursetningu og fegrun við hundasleppisvæðið á Selfossi.
Stefnumót við Múlatorg
Frá 2014 hefur Auður árlega haldið fjörugan markaðsdag með sýningu og sölu á plöntum, handverki og listmunum í Fossheiðagarði þeirra hjóna við Múlatorg. Næsta Stefnumót við Múlatorg verður haldið laugardaginn 16. Júlí nú í ár og hvetjum við alla til að daginn frá og mæta í garð þeirra hjóna við Múlatorg.
Fyrir hönd frístunda- og menningarnefndar sveitarfélagsins afhenti Guðmundur Kr. Jónsson Auði I. Ottesen menningarviðurkenningu Árborgar 2022 á bókasafni Árborgar, Selfossi.
Tónlistarskóli Árnesinga mætti í tilefni afhendingarinnar og spiluðu þær systur Margrét Lóa og Ásgerður Saga Stefánsdætur á fiðlu við undirleik Guðmundar Pálssonar.
Að tónlistarflutningi loknum hélt Auður erindið, Að gera garðinn frægan, um töfrana sem skapa fallegan garð á mjög lifandi og skemmtilegan hátt. Erindið var hluti af menningar- og bæjarhátíðinni Vor í Árborg 2022.