Auglýsing um framboðslista
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga, sem fram fara 14. maí 2022, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 8. apríl 2022.
Kosið verður til bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Árborg. Framboðslistar skulu hafa borist yfirkjörstjórn Sveitarfélagsins Árborgar fyrir ofangreindan tíma.
Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum í fundarsal á 3. hæð, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, föstudaginn 8. apríl 2022 frá klukkan 11:00 fyrir hádegi til klukkan 12:00 á hádegi.
Á framboðslista skulu vera að lágmarki 11 nöfn frambjóðenda og eigi fleiri en 22. Framboðslistum fylgi yfirlýsing þeirra, sem á listunum eru, um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listana, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Framboðslistum skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í sveitarfélaginu, 80 meðmælenda hið fæsta og eigi fleiri en 160. Hver kjósandi má einvörðungu mæla með einum lista við hverjar kosningar.
Með hverjum framboðslista skal fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um það hvaða tveir menn séu umboðsmenn listans. Ef um ný stjórnmálasamtök er að ræða skal framboðslista fylgja staðfestingu á skráðu heiti og listabókstaf samtakanna.
Gæta skal þess að tilgreina með skýrum hætti fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu og lögheimili, til þess að enginn vafi leiki á því hverjir séu í kjöri. Greina skal nafn, kennitölu og lögheimili meðmælenda.
Nánari upplýsingar um framkvæmd sveitarstjórnarkosninga er að finna á www.kosning.is
Selfossi, 28. mars 2022
Yfirkjörstjórnin í Sveitarfélaginu Árborg
Ingimundur Sigurmundsson
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir
Steinunn Erla Kolbeinsdóttir