Betri Árborg
Sveitarfélagið Árborg hefur nú þátttöku sína á samráðsvefnum Betra Ísland. Þessa nýju samráðsgátt köllum við einfaldlega Betri Árborg . Gáttinni er ætlað að vera vettvangur fyrir samráð íbúa og bæjarfyrirvalda um ýmis málefni í sveitarfélaginu.
Með Betri Árborg aukast möguleikar íbúa til þátttöku í mótun samfélagsins. Aukið íbúalýðræði er hluti af stefnu bæjarstjórnar, eins og fram kemur í málefnasamningi um samstarf meirihluta bæjarstjórnar 2018-2022, en þar er jafnframt sérstök áhersla lögð á að virkja ungt fólk til þátttöku. Það er trú okkar að með íbúum náum við að skapa vettvang málefnalegrar umræðu sem getur orðið grunnur að stefnumörkun sveitarfélagsins og framþróun í þjónustu þess. Með reynslunni verður svo hægt að þróa notkun þessa vettvangs þannig að hann þjóni sveitarfélaginu og íbúum þess sífellt betur eftir því sem fram líða stundir.