Biðlistar á frístundaheimilum
Frístundaheimili Árborgar | Inntaka barna haust 2022. Staðan á biðlistum 25. ágúst.
Í dag er mönnunarvandi á frístundaheimilum í Sveitarfélaginu Árborg
Inntaka barna mun tefjast af þeim sökum og á þremur af fjórum frístundaheimilum í sveitarfélaginu er biðlisti.
Staðan í dag er sú að samtals eru 179 börn á biðlista eftir plássi á frístundaheimilunum í sveitarfélaginu. Það horfir þó til betri vegar.
Unnið er að því að ráða inn starfsfólk til að fækka á biðlistum eins fljótt og kostur er. Börn eru samþykkt inn á frístundarheimilin samkvæmt reglum sveitarfélagsins um þjónustu þeirra.
Reglur um þjónustu frístundaheimila Sveitarfélagsins Árborgar
Virðingarfyllst,
Gunnar E. Sigurbjörnsson, deildarstjóri frístundaþjónustu