Bókasafn, þjónustuver og atvinnu- og menningarmál sameinuð í eina deild
Ákveðið hefur verið að sameina bókasafn, þjónustuver og atvinnu- og menningarmál undir eina deild sem staðsett verður á fyrstu hæð Ráðhússins.
Á hæðinni verður hlýleg móttaka fyrir þá sem sækja þjónustu, upplýsingar eða viðburði hjá Árborg í alþýðlegu umhverfi bókasafns
Helstu markmið með sameiningunni eru að styrkja afgreiðslu bókasafns og þjónustuvers, hagræða í rekstri deildanna með aukinni samvinnu, efla upplýsingamiðlun sveitarfélagsins, innleiða stafrænar lausnir ásamt því að veita skilvirkari þjónusta til íbúa, starfsmanna og gesta Árborgar.
Margrét Blöndal hefur verið ráðin til eins árs sem deildarstjóri nýju deildarinnar
Margrét hefur undanfarin tvö ár starfað sem framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands. Margrét hefur víðtæka reynslu á sviði fjölmiðla og verkefnastjórnunar, hún hefur skrifað tvær ævisögur og stundar nú nám við Háskólann á Bifröst í menningarstjórnun.
Nýja deildin heyrir undir stjórnsýslusvið Árborgar þar sem Helga María Pálsdóttir, bæjarritari, er sviðsstjóri.
Lagt var upp með að sameiningin yrði unnin í nánu samstarfi við alla starfsmenn deildanna. Vinnustofur voru haldnar og farið var í vettvangsferð til að sjá hvernig nágrannasveitarfélögin hafa hafa útfært sambærileg mál. Starfsmenn nýju deildarinnar vilja skapa hlýlegt rými þar sem að íbúar geta komið og sótt sér fjölbreytta þjónustu og afþreyingu.
Stefnt er að því að fyrsta hæð Ráðhússins verði hjarta Árborgar og þar geti allir aldurshópar fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar verður þjónustuver og bókasafn og auk þess miðstöð atvinnumála, menningar og lista.