Borðtennisæfingar hefjast í Sunnulækjarskóla mið. 13.maí.
Borðtennissamband Íslands mun á næstu vikum prófa að vera með borðtennisæfingar í Fjallasal Sunnulækjarskóla fyrir börn í 5. - 10.bekk. Þátttökugjald er ókeypis og geta öll börn á þessum aldri komið og prófað.
Stefán Sverrisson mun sjá um æfingarnar sem verða á eftirfarandi tímum:
- Miðvikudaga kl. 17:30 - 18:30
- Föstudaga kl. 16:00 - 17:00
Megináhersla á æfingum verður að hafa gaman að því að spila borðtennis, kynnast ýmsum borðtennisleikjum og bæta færni iðkanda í borðtennis í leiðinni.
Það eru 2 borð á staðnum og kúlur, gott að koma með eigin spaða en það eru líka nokkrir aukaspaðar á staðnum.
Það er hentugt að vera í inni-íþróttafötum á borðtennisæfingu, strigaskóm, stuttbuxum og bol.
Allir eru velkomnir, byrjendur sem lengra komnir. Borðtennis er fyrir alla.
Hægt er að hafa samband við Stefán í síma 612-9566 eða stefan.sverrisson@gmail.com