Breytingar á gjaldskrá fyrir félagslega stuðningsþjónustu
Endurskoðun á gjaldskrá félagslegrar stuðningsþjónustu voru samþykktar í Velferðarnefnd þann 2. maí og staðfestar í Bæjarstjórn þann 15. maí s.l.
Eftir breytingar verða þrír gjaldflokkar:
Gjald 1: 0.kr pr./klst. Einstaklingar á eða undir framfærsluviðmiði Tryggingastofnunar ríkisins. Hjón eða sambýlisfólk með mánaðarlega framfærslu undir 626.627.kr
Gjald 2: 1.640.kr pr./klst. Einstaklingar með tekjur hærri en framfærslu viðmið Tryggingastofnunar ríkisin. Hjón eða sambýlisfólk með mánaðarlega framfærslu yfir 626.627.kr
Gjald 3: 2.200.kr pr./klst. Einstaklingur með mánaðarlega framfærslu 483.178.kr eða meira. Hjón eða sambýlisfólk með mánaðarlega framfærslu samanlagt yfir 785.161.kr
Helstu breytingar sem gerðar voru á gjaldtöku þjónustunnar er að tekið var upp forfallagjald kr.1.640 ef þjónusta er ekki afboðuð með 2 klukkustunda fyrirvara, einnig hjá þeim sem þiggja gjaldfrjálsa þjónustu.
Vakin er athygli á því að einungis er tekið gjald fyrir heimilisþrif en ekki aðra þjónustu félagslegrar stuðningsþjónustu.
Breytingarnar taka gildi frá 1.september 2023
Biðjum við alla með heimilisþrif hjá félagslegri stuðningsþjónustu að skila inn nýjasta skattframtali fyrir 31. október 2023 í Ráðhús Árborgar, eða í tölvupósti á fullordinsteymi@arborg.is