Dagur atvinnulífsins á Suðurlandi 2022 |FRESTAÐ
Því miður hefur sú ákvörðun verið tekin að fresta viðburðinum “Dagur atvinnulífsins á Suðurlandi” fram á haust.
Þessi ákvörðun er tekin vegna ónægra þátttöku á viðburðinn sem halda átti á Hótel Selfossi 28. apríl 2022.
Sveitarfélagið þakkar öllum sem hafa unnið að því að bjóða upp á þétta og fræðandi dagskrá og vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og taka þátt í áhugaverðri dagskrá og vinnustofum í haust.
Einnig þökkum við þeim sem búnir voru að skrá sig á viðburðinn og svarað spurningum við skráningu. Þær upplýsingar koma til með að nýtast okkur til að gera Dag atvinnulífsins á Suðurlandi enn betri!