Deiliskipulag fyrir hluta Austurvegar og Vallholts
Sveitarfélagið Árborg vinnur nú að gerð deiliskipulags fyrir hluta Austurvegar og Vallholts.
Tillagan er nú á vinnslustigi og hefur verið send fasteignaeigendum innan deiliskipulagssæðis til umsagnar.
Þegar tekið hefur verið tillit til umsagna mun tillagan verða formlega auglýst til athugasemda. Við hvetjum þá sem telja sig eiga hagsmuni að gæta, að kynna sér tillöguna og koma sínum ábendingum á framfæri ef þurfa þykir.
Vallholt - Austurvegur | Deiliskipulag
Ábendingum má skila á netfangið | skipulag@arborg.is
Anton Kári Halldórsson, skipulagsfulltrúi