Döff menningarhátíð í Selfossi.
Í dag hófst norræn menningarhátíð heyrnarlausra á Selfossi. Þátttakendur eru á þriðja hundrað frá 6 löndum auk Íslands. Hátíðin stendur fram á sunnudag og mun setja ánægjulegan svip á komandi verslunarmannahelgi.
Af þessu tilefni var leitað til Málnefndar um íslenskt táknmál sem tók að sér að kenna ýmsum þjónustuaðilum í miðbænum að bjóða gesti velkomna á táknmáli og tóku einnig saman nokkur algeng tákn sem starfsfólk getur nýtt sér í samskiptum sínum við hátíðargesti. Þetta eru tákn eins og góðan dag, og gott kvöld, gjörðu svo vel og takk fyrir.
Svona tekur Magnús Gísli Sveinsson forstöðumaður íþróttamiðstöðvar á móti gestum í Sundhöll Selfoss

